Snufflebabe nefsuga
Snufflebabe nefsuga er einföld í notkun og með filter sem má þrífa undir volgu vatni. Það eitt sér gerir hana að hagkvæmum kosti fyrir barnafjölskyldur.
Stundum er nauðsynlegt að nota hjálpartæki við losun á erfiðum stíflum í efri öndunarvegi (nefi barnsins). Nefsuga til að ná hori eða slími úr nefi barna.
Athugið: Ef hor hefur náð að þorna og stíflar nefgöng þá er mælt með því að nota Stérimar Baby til að mýkja og leysa upp horið áður en það er sogið upp í nefsuguna.
Hentugt hjálpartæki til að sjúga hor úr nefi.